Gefðu gjafabréf á Apotekið! Apotek Restaurant er “causal/smart” staður þar sem boðið er upp á ljúffengar veitingar í líflegri stemningu og flottu umhverfi. Matseðilinn er skemmtileg blanda af íslensku og evrópsku eldhúsi með funheitu argentísku grilli. Fjöldi smárétta er á matseðlinum sem mælt er sérstaklega með að gestir smakki og njóti saman. Á staðnum er lifandi kokteilbar þar sem verðlaunaðir „apótekarar“ hrista saman spennandi kokteila við allra hæfi - örvandi, róandi og jafnvel verkjastillandi.